hér bloggar jonko

Halló þú:)

13.01.2007 12:06:41 / jonko

nýtt blogg

komin með nýtt blogg http://www.jonbjorg.bloggar.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 19:24:15 / jonko

KOMIN AFTUR

Jæja Góðan dagin Minn sirkus er nú bara ekkert eins skemmtilegur og ég hélt, ég er bara komin aftur hingað, fólk búið að kvarta yfir minn sirkus blogginu að það sé bras að komast inn á það og eikkað vesen þannig að ég ætla bara að vera hérna:) Litli brói kemur í bæinn um helgina og ég hlakka nú bara pínu til að að hitta þetta litla örverpi, hann er nú einu sinni gáfaðri en ég, vona bara að ég læri eitthvað nýtt þegar hann kemur hehe;) ég er EKKERT búin að fara í skólann alla þessa viku... :/ Sindri búinn að vera heima því hann slasaði sig á sunnudagin og hefur ekkert getað farið á leikskólann, greyið litla en ég fer á morgun, það verður bara nóg að gera hjá mér á næstunni að safna því sem búið er að gera í þessari viku .... úffffff Nóg að gera á næstunni, Afmæli núna á laugardaginn svo það er sjamm, svo er það skólinn, næsta laugardag er það Brodway takk fyrir takk árshátíð hjá Húsasmiðjunni, bara snilld það er víst hálfrar aldar afmæli svo þetta verður eitthvað rosalega fínt og haldið þið að gleðipinnarnir EÐLURNAR verði ekki að leika fyrir dansi, hverjir sem í fjandanum það eru..... bara snilld samt, allt saman frítt, flug fram og til baka gisting á hóteli og fordrykkur á Brodway, Guðni fær líka frítt, hehe þetta er pottþétt:) jájá svona er að vera æðisleg og falleg eins og við Guðni, takið okkur til fyrirmyndar og heimurinn verður mun betri staður til að lifa á múhahahahahahahahahaha later jonkoin has left the building:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 14:23:06 / jonko

minnsirkus.is

Jæja, langt siðan síðast, langaði bara að láta ykkur vita að ég er búin að færa bloggið mitt yfir á minsirkus.is sem er bara snilld, góður staður til að kynnast fullt af fólki og athugið þetta er ekki eingöngu fyrir unga fólkið, þetta er fyrir fólk á öllum aldri, og áslaug ef þú lest þetta þá þarftu ekki að vera skráður notandi til að skoða bloggið en endilega mátt alveg skrá þig, væri bara gaman að haf aþig hjá sér:þ vonandi koma sém flestir inn á minnsirkus:)bæjó

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 19:38:32 / jonko

best í ræktinni

jæja, þá er ég búin að fara í ræktina í dag, ég er bara orðin rugl dugleg, fer í ræktina á hverjum degi og er í lágmark 1 1/2 tíma í senn:) Verð að deila með ykkur þvi sem gerðist um dagin, það var fuck fyndið , var að gera magaæfingar, kemur einhver kall og legst við hliðina á mér og gerði sig klárann til að gera magafingar, herðu hann tekur fyrstu æfinguna og haldið þið að það komi ekki þetta allsvaðalega prump með, ég er að segja ykkur það, eg átti svo bágt með að truflast ekki úr hlátri en ég náði að stilla mig, greyið maður fór ekkert smá hjá sér og eina sem hann gat sagt var "Guð min góður" það kom ekki einnu sinni afsakið en vá hvað þetta var fyndið.... bwahahahahahahaha :) Ef þið hafið einhvern tíman lent í þessu endilega deilið því  með okkur, hláturinn lengir lífið. ekki vera feimin:) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 19:37:04 / jonko

ófærð og vitlaust fólk á akureyri

Það er alveg með eindæmum hvað fólk getur verið vitlaust þegar það er að keyra í snjó, það bara þorir ekki að gera rassgat og öll umferð stoppar. Það eru gröfur og heflar út um allan bæ og það mok snjóar hérna, ég fór út í gærkvöldi, fór til pabba og var þar í 2 tíma, ég ssá ekki bílinn þegar ég kom aftur út, hann var bara bókstaflega á kafi, svona er þetta´búið að vera hérna á Akureyri í 2 daga og á að vera svona út vikuna víst svo ég segi bara öllum skíða og bretta unnendum að drífa sig til Akureyrar og skella sér í fjallið:) það er æðislegt veður úti núna, koma fleyri og fleyri í bæinn og það er bara gaman og svo er það djammið um helgina:)
jæja ég kveð í bili túrílú, adíos og chao chao:) over and out.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 19:35:07 / jonko

hláturinn lengir lífið:)

Konur yfir fimmtugt, eignast ekki börn. Þær mundu aldrei muna hvar þær lögðu þau frá sér.

Women over 50 don't have babies because they would put them down and forget where they left them.

Ein ráðgátna lífsins er hvernig 750 gr af konfekti verða 2 kg af konu.

One of life's mysteries is how a 2 pound box of candy can make a woman gain 5 lbs.

Ég læt hugann reika.., en stundum yfirgefur hann mig

My mind not only wanders, it sometime leaves completely.

Besta leiðin til þess að gleyma öllum vandræðum, er að ganga í of þröngum skóm.

The best way to forget all your troubles is to wear tight shoes.

Hið góða við að búa í litlum bæ, er að þegar ég veit ekkert hvað ég er að gera, veit einhver annar það.

The nice part about living in a small town is that when you don't know what you're doing, someone else does.

Með aldrinum verður erfiðara að léttast. Árin, líkaminn og fitan bindast vináttuböndum.

The older you get, the tougher it is to lose weight because by then, your body and your fat are really good friends.

Ég var einmitt að sættast við gærdaginn, en þá kom þessi dagur

Just when I was getting used to yesterday, along came today.

Stundum finnst mér ég skilja allt, en svo kemst ég aftur til meðvitundar.

Sometimes I think I understand everything, then I regain consciousness.

Ég hætti að skokka mér til heilsubótar þegar hitinn af læranúningnum kveikti í sokkabuxunum.

I gave up jogging for my health when my thighs kept rubbing together and setting my pantyhose on fire.

Undarlegt! Ég hengi eitthvað upp í skáp og eftir smátíma hefur það hlaupið um tvö númer!

Amazing! You hang something in your closet for awhile and it shrinks two sizes!

Horrenglur pirra mig! Sérstaklega þegar þær láta út úr sér hluti eins og : "Veistu, stundum bara gleymi ég að borða." Sko, mér hefur tekist að gleyma hvar ég á heima, hvar ég lagði bílnum, hvers dóttir mamma er og hvar ég setti lyklana, En ég hef aldrei gleymt að borða. Hvílík heimska: að gleyma að borða!

Skinny people irritate me! Especially when they say things like, "You know, sometimes I just forget to eat." Now I've forgotten my address, my mother's maiden name, and my keys. But I've never forgotten to eat. You have to be a special kind of stupid to forget to eat.

Vinkona mín tók feil á Pillunni sinni og valíuminu sínu. Hún á orðið 14 börn, en henni er eiginlega alveg sama.

A friend of mine confused her valium with her birth control pills. She had 14 kids, but she doesn't really care.

Vandi sumra kvenna er að þær æsast upp útaf einhverju ómerkilegu og giftast því svo.

The trouble with some women is that they get all excited about nothing and then they marry him.

Það stóð í grein að dæmigerð einkenni streitu væru: að borða of mikið, kaupa það allt sem manni dettur í hug og að aka of hratt. Er ekki í lagi með þetta lið? Þetta er það sem gefur lífi mínu gildi.

I read this article that said the typical symptoms of stress are: eating too much, impulse buying, and driving too fast. Are they kidding? That is my idea of a perfect day.

Ég hef komist að leyndarmáli fatanna frá Victoria's Secret. Leyndarmálið er að engin eldri en þrítug passar í þau.

I know what Victoria's Secret is. The secret is that nobody older than 30 can fit into their stuff.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 19:19:53 / jonko

Þeir deyja ungir sem Guðirnir elska.

Síðasta Laugardag fékk ég leiðinlegt símtal, símtal sem enginn vill fá, það var verið að tilkynna að hann Sesar Þór væri dáinn, þetta fékk nokkuð á mig, Siggi bróðir hans er mjög góður vinur minn og ég finn svo hrikalega mikið til með honum og fjölskyldu hans, ég þekkti Sesar ekki mjög mikið en hitti hann nokkru sinnum og ég gleymi aldrei yndislega brosinu hans, og þegar hann brosti til manns á rúntinum, hann var svo mikið kvennagull, bræddi mann með brosinu, alveg sama bros og hann Siggi er með.

Ég vil votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð.

Elsku Sesar minn, Bros þitt lifir í hjarta mér, hvíldu í friði.


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 09:12:36 / jonko

SKEMMTILEG VIKA

hrikalega skemmtileg vika, ég er byrjuð í ræktinni á fullu, helv.... gaman:) er núna á námskeiði á Símey, er í tíma sem heitir heilbrigður lífstíll.... svaka heilbrigt að hanga í tölvunni... ;) læt það nú vera, annars er ekki mikið búið að gerast hjá mér nema ræktin...... spennandi líf, er samt ekki sátt með að vera búin að þyngjast um 1kg og breikka eftir að ég byrjaði í ræktinni... :( það er ekkert gaman við það, svo er alltaf sagt að skapið í manni verði betra þegar maður stundar reglulega hreifingu... EKKI ÞEGAR MAÐUR ÞYNGIST VIÐ ÞAÐ................................... nei nei ég segi bara svona, jú skapið skánar um helling þó ég sé fúl yfir hinu.... :) það fer fljótlega:) Ég er lítið búin að heyra í jolly, held hann sé kominn með vinnu á bar, veit ekki alveg hvar en ég held það sé í Århus, er samt ekki alveg viss, jæja nú er kennarinn að byrja... síjú leiter;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 12:44:37 / jonko

Frekar fínn afmælisdagur

já eins og margir vita þá átti ég afmæli í gær, á nú aðeins 8ár eftir í þrítugs aldurinn...... átti góðan afmælisdag, fór í vinnuna kl12 vann til 8, maggi bauð mér í mat, kjúklingabringur. mmmmm slef, ekkert smá góðar, fór svo heim til mín þar sem var samkunda, ég, lilli brói, jón Eyberg "The LOVE of my life" hehe, Bjarki, linda, rósella og Maggi, skemmtum okkur helv... vel, fórum svo í bæinn, sem voru mistök því það var eiginlega ekkert gaman í bænum, fórum á krána þar sem voru alveg 10 mans ef það náði því, löbbuðum svo upp í bæ í hávaðaroki, voru örugglega 25m/sek í mótvind....... svo pillaði maður sig heim, fór að sofa og var svo ógeðslega þunn dagin eftir, var reyndar fljót að jafna mig á því;) Ég er líka búin að komast að því að bróðir minn er klikk.. nenni ekki a ð útskýra, skoðið bara bloggið hjá honum www.blog.central.is/we-man bara ruglaður.... :) en besta sál þrátt fyrir það. Ég er farin að sakna jolly´s hann flutti til DK 5jan, það eru nokkrir mánuðir þangað til maður hittir blessaðan svínabóndan. Ég er að fara að stinga af af þessu Guð blessaða skeri, fara sömu leið og jolly og flytja til DK, er að fara að sækja um í skólum þar sem ég get lært iðjuþjálfa:)  

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 19:13:15 / jonko

Kæru vinir! Hér er smá könnun sem ég myndi svo gjarnan vilja að þið tækjuð þátt í. Vondandi taka sem flestir þátt.

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?.

4. Ertu hrifinn af mér?

5. Langar þig að kyssa mig? .

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 18:20:02 / jonko

7.des ´05-20.jan ´06

alltílæ..... ég skal blogga.... það er liðinn einn mánuður, 13 dagar, 6 klst og 22 min síðan ég bloggaði síðasta, jólin voru frábær, fékk helling af nitsamlegu drasli í jólagjaf;) takk allir sem gáfu mér jólagjöf. Áramótin voru skemmtileg, var edrú og tók á móti nýju ári allsgáð, enda sjaldnar sem ég drekk. á Morgun er svo afmælið mitt, jamm jamm, ég er að verða 22 ára, bara 8ár í þrítúgs aldyurinn, guð og þá verður sindri orðinn 11 ára að verða 12, jiminn, úff þetta er rosalegt.

Dagurinn dag var frekar erfiður, afi minn dó 6.jan og var jarðsunginn í dag, hrikalega erfitt að kveðja hann, sérstaklega þar sem ég fékk aldrei að kynnast honum vel, vildi óska að ég hefði nýtt þau tækifæri sem ég fékk til að kynnast honum en svona er lífið, er að kynnast fjölskyldu minni núna, semsagt Áslaugu frænku, Inger Rut en þær eru hálf systur mömmu minnar.... jamm þeir sem þekkja mig VEL skilja þetta, þið hin ekki reyna að skilja þetta á eigin spítur, aðeins of flókið. Ég vil nota tækifærið og þakka fjölskyldu minni fyrir allan stuðning og skilning sem þau hafa sýnt mér, hefði ekki getað þetta án skilningsins. 

jammjamm svona er lífið, allt hefur upphaf og endi. hef ekki margt fleira að segja svo ég kveð í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 12:52:25 / jonko

Kaffimella

Já það mætti segja að ég sé bara kaffimella í dag...... Kjartan og Brói eru sko að skipta um útidyrahurð í blokkinni þar sem pabbi býr og ég af minni góðmennsku dreif mig þangað og hellti upp á kaffi handa strákunum, það er nefnilega algjör skítakuldi úti, held það sé 7 stiga frost, rugl kallt sko. Þeir fóru svo í hádegismat en koma svo aftur á eftir og ef ég þekki þá rétt þá eiga þeir eftir að biðja um meira kaffi:)

Spáið í ruglinu, ég var að lesa fréttablaðið í dag og þar er sagt frá konu sem hefur ítrekað reint að myrða 16 ára gamlan son sinn, stakk hann núna í brjóstið með hníf, þar áður hafði hún sett svefnlyf í bananatertu og í pottrétt. hú ætlaði svo að kæfa hann þegar hann væri sofnaður en stráknum fannst bragðið eitthvað skrítið og borðaði þetta því ekki. Misheppnuð kella................ já það eru margir geðbilaðir í þessum heimi, mér finnst vera búið að vera frekar mikið um þetta að foreldrar séu að drepa börnin sín, las um dagin um mann sem hringdi í lögregluna og sagðist hafa drepið 2 dætur sínar og væri núna á einhverri brú og hugðist stökkva, lögreglan náði manninum áður en hann stökk og fann svo dætur hans 2 ára og 7 ára myrtar á þeim stað sem hann hafði gefið upp....... Önnur frétt, ungt par grunað um að myrða 2mánaða gamalt barnið sitt, þau ætluðu að reyna að fá það til að hætta að gráta og gáfu því pela með víni vatni og salti í.............. mér finnst þetta aðeins of mikið. þessar 2 fréttir voru í sama blaðinu, svona fólk á náttúrulega bara að loka inni. það fæðir börnin sín inn í þennan heim og drepur þau svo, aarg hvað mér líður illa bara við að lesa um svona og heyra svona, þetta er alveg hrikalegt en svona er lífið og við getum víst voða fátt gert til að reyta því.


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 20:06:49 / jonko

Siðugt

Comentaðu nafninu þínu og..
1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!

» 11 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 11:38:25 / jonko

dagurinn í dag

jæja, þá styttist í það að maður fari að arka niður á glerártorg til að kynna Sindra fyrir jólasveinunum, verst hvað hann er hræddur við þá:S kannski ég fari nú bara smá í búðir fyrstmaður er að fara þangað á annað borð;) ekkert skemmtilegra en fara í búðir, Guðný Ósk er komin í bæinn, við ætlum að fara með henni á torgið á eftir.

Kannski að maður dragi það til morguns að baka þessar blessuðu piparkökur en hver veit nema að maður verði duglegur og geri það á seinnipartinn8|

Já hann Sindri minn er nú meiri gullmolinn, gerir fátt annað þessa dagana en að syngja, hann ffer oft með afa sínum á kóræfingu með hymnodiu og finnst það ekki amalegt, syngur með af lífs og sálarkröftum... Mia o Maria... Mia o Maria. bara sniðugt að hlusta á hann:)

Svo er hann alltaf rosalega snjall við að reyna að koma sér undan því sem hann er beðinn um að gera........

hann var í eitthvað pirruðu skapi um dagin og ég var að reyna að fá hann til að fara í rúmið, hann argaði bara á mig, tók einn kodda og henti honum upp á tölvuborð (hann átti að fara í mig)..... ég sneri mér við og bað hann vinsamlega að taka koddan, svona gerði maður ekki, þá fór hann að skæla og sagði "en mamma ég get það ekki, ég er svo þreyttur í höndunum.... " :haha:
já já, það er aldrei gott að segja hvað þessir litlu englar okkar eru að hugsa...
en jæja ég er að spá í að láta þetta heita gott í bili:)
jonko... over and out.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 02:30:36 / jonko

Minningar

Alltaf þegar jólin nálgast minnist ég ömmu mundu sérstaklega, hún dó fyrir 4 árum, 24.apríl 2001. Við systkynin eyddum mestum tíma yfir jólin hjá ömmu og afa í einholtinu þegar við bjuggum þar, rétt áður en hún dó samdi ég þetta ljóð og langaði að deila því með ykkur kæru lesendur.

Lífið svo ljúft,
leikur við mig.
Hjartað svo heitt
hugsar um þig.
Ástin svo áköf
á þig kallar.
heyri þig hvísla
er höfði hallar.
"Elskan mín eina,
ekki fara"
sé ekki sál þína,
"viltu svara?"

-Góði Guð viltu gefa henni tíma
til að búa sig undir eilífðina.



jónbjörg
1984-


Rétt fyrir jarðaförina samdi ég svo þetta ljóð, skrifaði það á borða og það fylgdi henni í kistuna.

Þú fylltir líf mitt gleðitárum,
þú læknaðir brotin hjörtu.
Nú ertu farin,
dagar verða að árum,
ég séð get ei sólina björtu.

Árin líða-sárin gróa,
hjarta mitt fyllist af hlýju.
Nú hugsa ég um framtíðina,
er hittumst við aftur að nýju.



jónbjörg
1984-
Guð varðveiti minningu hennar. "Ég mun aldrei gleyma þér amma"

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Ljóðin mín
Bloggarar